Annað

Sálfræðingar fást stundum við vandamál sem ekki útheimta sérmenntun þeirra. Það er oft leitað til þeirra til að fá stuðning í erfiðum aðstæðum sem geta verið af ýmsum toga. Til dæmis í samböndum eða þegar brátt andlát ber að höndum. Ráðgjöf er oft veitt jafnt hjá einstaklingum og í fyrirtækjum og fræðsluerindi og fyrirlestrar eru einnig vettvangur þar sem oft er leitað til sálfræðinga.