Ráðgjöf

Ráðgjöf Greiningar og meðferðar snýr bæði að einstaklingum og vinnustöðum.

Greining og meðferð hefur komið að öllum hliðum eineltismála á vinnustað. Rannsókn mála, álit á framkvæmd og niðurstöðum eineltisrannsókna og mat á mögulegri útkomu kæru. Greining og meðferð vinnur rannsóknir helst í teymi með öðrum serfræðingum.

Unnið hefur verið  fyrir verkkaupa rannsóknar, meinta þolendur og meinta gerendur. Greining og meðferð hefur einnig veitt ráðgjöf vegna meðferðar eineltiskvartana sem rannsökuð eru innanhúss, handleitt meðferð slíkra mála og leiðbeint um eineltisáætlun.

Sálfræðingur Greiningar og meðferðar hefur mikla reynslu af handleiðslu starfsmanna í erfiðum vinnuaðstæðum eða þegar aðrir erfiðleikar gera það að verkum að starfið verður sligandi. Þá er ráðgjöf um úrbætur og eftrifylgd sjálfsagður hluti vinnustaðaúttektar.

Ráðgjöf fyrir einstaklinga hefur aðallega snúist um erfiðar aðstæður á vinnustað, samskiptavanda heima fyrir eða óöryggi í öðrum samskiptum. Auk ráðgjafar er þá oft beitt hvetjandi samtali þegar staðan hefur verið metin og styrkleikar og veikleikar liggja fyrir.

 Höfundarréttur (c) 2021 – allur réttur áskilinn – frjálst er að hlekkja á síðuna.